Fimmta - hönnunarklasi
Fimmta er samfélag sjálfstætt starfandi grafískra hönnuða og hönnunarstjóra sem hafa víðtæka reynslu og sérþekkingu hver á sínu sviði. Í stærri verkefnum stillum við krafta okkar saman til að ná fram bestu niðurstöðu til virðisauka fyrir verkkaupa.
í Bolholtinu númer fjögur erum við í elementinu okkar. Bjart og skemmtilegt húsnæðið með útsýni yfir hina síbreytilegu Esju veitir okkur endalausan innblástur og gleði.
Örn Smári
Hönnunarstjóri og grafískur hönnuður
Smári hefur starfað sjálfstætt síðustu 15 ár og hefur hannað allskonar. Logo, fyrirtækjaútlit, verðlaunagripir og yfir 100 frímerki eru á verkefnalista hans. Hann nýtur sín best í krefjandi hönnunarverkefnum tengdum mörkun og logo hönnun.
OrnSmari(að)OrnSmari.net
Þrúður Óskarsdóttir
Grafískur hönnuður og Hönnunarstjóri
Þrúður er alin upp á stórum auglýsingastofum en hefur líka langa reynslu af því að vinna sjálfstætt. Orkuna sækir hún í náttúruna, fjallgöngur eða sjósund og skemmtilegustu verkefnin tengjast branding/mörkun.
THO(að)internet.is
Hunang - Sigrún Sigvaldadóttir
Bóka-, leturhönnuður og þjóðfræðingur
Sigrún hefur unnið sjálfstætt sem grafískur hönnuður undanfarin ár undir nafninu Hunang, meðfram námi í þjóðfræði við HÍ. Hönnun bóka og leikur með letur eru uppáhalds verkefnin hennar. Þess utan er hún að hanna letur sem byggð eru á handritaskrift.
Hunang(að)internet.is
Gréta Guðmundsdóttir
Master í grafískri hönnun
Gréta er hestakona með mastersgráðu í hönnun og hokin af reynslu í hvoru tveggja. Blanda af þessu tvennu er sem orkuskot fyrir hana.
https://gretavgudm.myportfolio.com/work.
GretaVGudm(að)gmail.com
Hunang — Ragnhildur Ragnarsdóttir
Hönnuður í sínum víðasta skilningi
Raggý er með víðtæka reynslu úr hönnunarheiminum og hefur lengst af starfað sjálfstætt undir nafninu Hunang. Framandi staðir veita henni innblástur ... og orð ársins 2019 eru „why not“
RagRag(að)Internet.is
Bolholt 4 - 5. hæð