Orn Smari Gislason Orn Smari Gislason

Logoþjófar Lindaskóla logosins

 

Merki Lindaskóla hlítur að vera það vinsælasta sem ég hef hannað. Það hlaut Lúður hjá Ímark um árið og er að koma sér vel fyrir á asískum markaði sýnist mér. Það er notað sem myndskreyting á bókakápu, á bol fyrir „summer camp“ og margt fleira. Þetta er meira og minna fyrir utan lögverndarsvæði íslenskra rétthafa svo ekkert hægt að gera til að verja það. Á tímabili var það eða er til sölu á vef sem selur logo á nokkra dollara.

1. Lindaskóli.png

Merki Lindaskóla hannað 2005

01logo.jpg

Haus á vef Jinshun Group vefnum

34.jpg

Hreinlega man ekki hvað þetta er.

58ab3e5be754816e6b117f61c18b7b6e.jpg

Allir að fara að dansa og skemmta sér hjá þessarri veisluþjónustu

114648_1657061_113980_image.png

Þetta fann ég á logo söluvef fyrir nokkrum árum og fékk því eytt.

69443221.jpg

Hér er eitthvað í gangi sem ég þekki ekki

201208311745103516.jpg

Þessi bók er sögð metsölubók í samskiptafræðum.

a0cb6a5d8c946fb1573a17546f13e6480.jpg

Dansinn lýsir sumarbúðum vel.

 
Read More
Orn Smari Gislason Orn Smari Gislason

Ferðalag hugmyndanna

 

Fólk um allan heim er að glíma við samskonar verkefni og áskoranir. Þá þarf að rannsaka og skoða viðkomandi svæði og í mínu tilfelli sem hönnuður að skoða vörumerki og fyrirtækjaútlit koma svo með lausn á málinu. Það gefur auga leið að þegar margir glíma við það sama hljóta að koma upp lausnir sem eru ólíkar en hitt hendir oftar en ekki að lausnirnar verða líkar, byggðar á sömu pælingum þó útfærslan sé aðeins frábrugðin.

Árið 2008 tók ég þátt í lokaðri samkeppni um logo fyrir Sjúkratryggingar Íslands og keppti við einn góðan merkjahönnuð, Oscar Bjarnason sem vann samkeppnina. Merkið sem vann má sjá hér. Mér fannst auðvitað súrt að tapa en var þó ánægður með mína lausn sem náði ekki í gegn hjá þeim sem völdu merkið.

2019 - um 11 árum síðar keyri ég fram hjá Hringbrautarverkefninu og rek augun í hvítt logo á grænum vegg. Merkið minnir mig óneitanlega á tillögu mína fyrir Sjúkratryggingarnar Íslands svo ég ek upp að veggnum og skoða merkið betur og smelli af nokkrum myndum.

Ætli þetta sé ekki einn eitt dæmið um það sem ég nefndi fyrr, að lausnirnar geta verið líkar þegar þegar unnið er fyrir ákveðinn „bransa.“

Ég tek fram að ég veit ekki hver hönnuður merkis Hringbrautarverkefnisins er.

 
Tillaga mín að merki Sjúkratrygginga Íslands frá 2008.

Tillaga mín að merki Sjúkratrygginga Íslands frá 2008.

 
Hringbrautarverkefnið logo - þekki ekki hönnuðinn.

Hringbrautarverkefnið logo - þekki ekki hönnuðinn.

 
Read More